Nýtt deiliskipulag fyrir frístundabyggð í landi Narfastaða í Hvalfjarðarsveit var samþykkt sumarið 2007. Meðfylgjandi PDF skjal er greinargerð um skipulagið, skipulags- og byggingarskilmála þess.
Ölvir heitir fjall eitt í Melasveit. Nú er þetta fjall tíðast nefnt Ölver og svo er það merkt á kortum herforingajaráðsins. Það mun verða örðugt að koma nafninu til síns rétta horfs aftur en má segja að það skifti kannske ekki reginmáli. Um Suðurnes og Innnes (Innnes, svo var í daglegu tali nefnt Álftanes, Seltjarnarnes, Kjalarnes og Akranes) að undanskildu Akranesi, gekk fjallið undir nafninu Blákollur. Var þar sennilega öllu helst átt við hæsta tindinn sem var þar notaður sem mið á fiskislóðum. Á kortum herforingjaráðsins er þessu haldið að kalla hábunguna á Ölvi Blákoll.
Recent comments
2 years 3 vikur síðan